Jú góðan daginn, orðið smá síðan ég skrifaði eitthvað á síðuna mína.
Ég ætlaði að skrifa um tölvur og aðalega skjákort.
Nú þau kort sem eru nú ríkjandi eru frá nVIDIA og ATi og allir hafa einhvern smekk á þessum kortum.
Ég verð að viðurkenna ég er mjög hrifinn af nVIDIA kortunum og var nVIDIA fan einu sinni. Ég man eftir því að þegar ég og vinir mínir vorum að ræða það að maður færi nú yfir í ATi þá gæti maður hoppað fyrir lest því það er ekki til betri kort en nVIDIA.
En okey, þau mega eiga það að þetta eru með þeim hröðustu kortum sem eru til í heiminum í dag. nVIDIA Geforce 8800 GTX Ultra er lítið sem 2200 Mhz með 768 Mb vinnslu minni sem hefur að segja að þetta er algjört skrímsli. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur að leikir hökti eitthvað. Þau eru nokkur kortin frá nVIDIA. Geforce 8800 GTX er 1800 Mhz með 768 Mb vinnslu minni. Þetta er allveg magnað hve hratt þetta er orðið. Þetta er komið uppí venjulega örgjörva hraðinn á þessu. Þetta eru líka DirectX 10 kort sem gerir það að verkum að þú þarft ekki að pæla hversu gott minni eða stóran örgjörva þú ert með. Nú sjá kortin um þetta allt saman. Þetta eru nýjustu kortin frá nVIDIA en þau eru frá 8600 og 8800.
ATi. Hehehe, það er soldið fyndið hversu margir þola ekki þessi kort. Einsog ég sagði áðan þá var ég fan og fyrir nokkrum árum síðan myndi ég frekar hoppa fyrir lest heldur en að fá mér þetta. Nýjasta eða nýjustu kortin frá þeim eru ATi Radeon HD X2900 XT eða frá 2400 til 2900. Ég var fyrir tveim árum með Geforce 5800 kort og var nokkuð ánægður. Vildi nýjan örgjörva hélt að það myndi laga tölvuna en pabbi var svo góður að gefa mér bónus fyrir vinnuna sem ég vann fyrir hann og ætlaði að gefa mér skjákort í bónus. Sagði að ég myndi frekar á því að halda heldur en örgjörva. Hann talar við strákana í Nýherja að leita af korti þar. Þeir mæltu með ATi 9800. Ég sagði strax „NEI“. Það kæmi ekki til mála. En þeir mæltu með þessu korti. Þetta var ekki dýrt mjög ódýrt og er borið saman við 5800 Geforce kortin. Ég gef mig á endanum og fæ kortið. Betra en ekki neitt, fyrir utan ég gat alltaf skipt aftur. Ég varð steinhissa þegar ég setti það í. Enginn vifta á því = enginn háfaði einsog í 5800 og minna um sig. Ég var ekki viss en setti það í. Það fyrsta sem ég gerði var að fara í Prince of Persia 2, og ég missti andlitið. Allt var miklu flottara, betri birta, flottari litir og EKKERT HÖKKT. Þannig ég hækkaði allt í botn, og ertu að grínast hvað þetta var flott að sjá. Ég gat hækkað grafíkina í öllu miklu hærra og litirnir voru æðislegir. Skærir og tærir og vávv. Ég sá ekki eftir því að hafa sett þetta í heldur setti gamla kortið uppí hillu og þar er það enþá frekar rykugt.
Á þessum tíma fékk Kjartan frændi sér nVIDIA Geforce 6800 BGF kort, og að sjá Farcry í botni með Anti-Aliasing á og Anastropic Filtering í 4x og 16x. Þetta var major flott og ekkert lagg eða hökkt. Ég fæ mér síðan eftir að hafa haft þetta kort í ár, þá loksins hef ég efni á að fá mér nýtt kort. Ég varð hrifinn af ATi en ætlaði að kaupa mér 7900 Geforce. Það var flott kort og að sjá einn vin minn með þetta var hrikalega flott að sjá. En ég fæ mér í staðinn ATi Sapphire 1900 XT með 512 MB vinnslu minni. Ég hélt ég myndi deygja. Þetta var enþá flottara en Geforce. Þetta er þvílíkt öflugt kort og vávv hvað Hitman Blood Money virkaði vel. Í BOTNI. En núna um daginn keypti Gunnar sér tölvu með ATi Radeon HD X2900 XT. Vávv hvað ég gat slefað yfir þessum gæðum í DirectX 9. En þetta er DirectX10 kort. Ég er með vista og fékk mér þetta líka bara fyrir tveim vikum síðan, og sé ekki eftir því.
Munurinn á þessum kortum er sá að nVIDIA eru miklu ofar í hraðanum heldur en ATi. ATi aftur á móti eru miklu ofar í Grafík og upplausn og litum. Það pæli ég miklu meira í. Það sem kom mér svolítið á áovart samt er að (Sama hvað nVIDIA Fan segir þetta er staðreynd) ATi eru með stöðugri kort. Svona er mál með vexti að nVIDIA eru frægir fyrir sýnar kælingar og Overclocking. Þessi 8600 og 8800 eru Overclockuð. Það er ekki sniðugt. Þetta er ástæðan fyrir þessum svaðalega hraða.
AMD keypti núna um daginn ATi þannig að ATi eru með AMD örgjörva. Kem betur að því á eftir.
ATi HD 2900XT er með venjulega AMD örgjröva sem er 1650 Mhz. Þetta er venjulegur örgjörvi en það sem nVIDIA gerir er að Overclocka 1400 MHz örgjörva. Það er einfaldlega ekki sniðugt. Það krefst mikillar kælingar og óstöðuleika í mörgum tilfellum. Fólk hefur verið að lenda í meira vandræðum með viftur á nVIDIA kortunum frekar en ATi. Þetta er líka það sem ég lít á með ATi. Ekki eins mikil kæling og venjulegur örgjörvi. Ég man alltaf eftir því að vera hreinsa eða skipta um viftur á Geforce kortunum. Þetta fór oft í taugarnar á mér.
Þeir hjá Computer.is eða Tæknibær mæla með ATi kortunum en mjög margir vilja ekki sjá þau. ATi kortin eru svakalega vanmetinn og nVIDIA eru svakalega ofmetin. Ég sá soldið um daginn sem fékk mig dálítið til þess að hlægja. Ég var að skoða Screenshots um daginn af Oblivion þar sem var notað Geforce 7900 og síðan ATi Radeon 1900. Það sem ég og frændu minn skoðuðum hjá okkur var að hann var með 7900 og þá sáust stundum skærar rákur í skugga á einhverju Character meðan hann var í skugga. En ekki hjá mér og ég var að nota 1900. Málið er að þegar ég sé þetta á netinu þá er búið að swappa nöfnum á kortunum og látið sem ATi séu með verri gæði heldur en Geforce. How low can you go? Þetta var gert af einhverjum nVIDIA fan útí heimi. Bara google-a þetta ATi Radeon X2900XT v.s. Geforce 8800.
ATi hefur galla líka. Það að það er ekki eins hratt og Geforce og Geforce er ekki með eins flotta liti. Fyrir þá sem vilja mjög hratt kort og vilja fá leikina til þess að renna á ís þá mæli ég með nVIDIA. En fyrir þá sem eru að vinna í myndvinnslu eða eru að pæla meira í grafík eða litum á leikjum þá fariði yfir í ATi. Ég get notað myndlíkingu á borð við þessa „Hvort viltu heldur fá ljótan bíl sem kemst uppí 400 eða flottan bíl sem kemst uppí 300?“. Ég er meira að pæla í útlitinu heldur en hraðanum svo að ATi er hjá mér. En ég hef ekki enn orðið var við neitt lagg í neinum leik í botni meðan ég er að nota 2900. Macarnir nota þessi kort 2400 og 2900 vegna að þessar tölvur eru mikið notaðar í myndvinnslu. IBM notar þessi kort frá ATi mjög mikið líka, og IBM eru einar bestu og virtustu fartölvu sem ég veit um.
Fyrir ykkur sem vita eitthvað um þetta og lásu þetta endilega commentið eitthvað á þetta.
Ég verð að bæta við verðinu á kortunum
nVIDIA 8800 ULTRA 768MB ódýrast 65.900
nVIDIA 8800 GTX 768MB ódýrast 48.860
nVIDIA 8800 GTS 640MB ódýrast 34.860
nVIDIA 8800 GTS 320MB ódýrast 26.860
nVIDIA 8600 GTS 256MB ódýrast 17.680
nVIDIA 8600 GT 256MB ódýrast 11.860
Þetta eru öll DirectX 10 kortin frá nVIDIA
ATi HD X2900XT 512MB ódýrast 38.860
Þetta er það eina DirectX10 kortið með ATi sem er komið allavega til íslands. Það eru samt til HD X2400XT og HD X2600XT en það virðist ekki vera til hérna. Samt sem áður þá er ATi miklu ódýrari heldur en nVIDIA kortinn en eru líka ótrúlega góð. Þeir segja á Tomshardwere.com að ef þú ert ríkur og veist ekki hvað þú átt að gera við peningin þá færðu þér 8800 ULTRA en annars mæla þeir með HD X2900XT. Þú færð allt fyrir peningin þar.
Hérna eeru 3 myndir sem sýna muninn á kortunum
